| Ritvinnsluverkefni:1
Tölvur
Á síðustu árum hefur orðið tölvubylting. Tölvur tengjast nú næstum öllum þáttum hins daglega lífs, bæði í leik og starfi. Þær eru nauðsynleg tæki í stjórnsýslu, skólum, stórverslunum, viðskiptum, bönkum og fyrirtækjum í verslun og iðnaði.
Helstu kostir tölva fram yfir menn eru hve miklar upplýsingar þær geta geymt og hve ótrúlega hratt þær vinna. Tölvur henta ákjósanlega til að vinna verk, þar sem gera þarf sömu aðgerðir oft og gæta nákvæmni, t.d. við bókhald, útreikninga eða til að fylgjast með framleiðslu í verksmiðjum.
Þótt tölvur vinni hratt eru þær ekki gáfaðar. Þetta eru aðeins vélar sem vinna undir stjórn. Ef tölvan fær ekki upplýsingar og skipanir frá stjórnanda sínum þá er hún engu snjallari en málmurinn og plastið sem hún er búin til úr.
Guðmundur Sævar Halldórsson.
|
| |
| 
Þetta er bara flottur bíll, það væri gaman að keyra þennann bíl um laugaveginn.  |
| |
| 
Þetta er flottasti BMW bíll sem ég hef séð það væri mjög gamann að vera á þessum bíl. |
| |